|
|||||||||||||||||||
|
Þetta upplýsingabréf segir frá því að fyrirhugað er að færa flugradíóþjónustu sem veitt er fyrir Húsavíkurflugvöll til Egilsstaðaflugvallar. Norðurþing mun sjá um eftirlit með Húsavíkurflugvelli og vetrarþjónustu.
|
|||||||||||||||||||
|
Ekkert áætlanaflug er nú um Húsavíkurflugvöll. Eftir að áætlanaflugi var hætt er lítið um flug. Fjöldi sjúkrafluga hefur verið undir 10 á ári undanfarin ár.
|
|||||||||||||||||||
|
Veitt er flugradíóþjónusta fyrir sjúkraflug.
|
|||||||||||||||||||
|
Tilgangur breytingarinnar er að tryggja örugga flugradíóþjónustu á Húsavíkurflugvelli fyrir sjúkraflug en jafnframt nýta betur fjármuni og mannskap.
|
|||||||||||||||||||
|
Vegna lélegs ástands og innvistar í turninum á Húsavíkurflugvelli er flugradíóþjónusta nú þegar unnin með myndavélum úr öðru húsnæði á flugvellinum svo að breytingin snýr að því að færa þá vinnustöðu til Egilsstaðaflugvallar.
|
|||||||||||||||||||
|
Tryggja þarf flugradíó þjónustu á Húsavíkurflugvelli fyrir sjúkraflug, setja upp búnaði og verklag fyrir vinnuaðstöðu á Egilsstaðaflugvelli og þjálfa flugradíómenn sem veita munu þjónustuna.
|
|||||||||||||||||||
|
Verkefnið kallar á öryggisferli, samþykki Samgöngustofu og uppfærslu AIP ICELAND.
|
|||||||||||||||||||
|
Stefnt er á að verkefnið klárist ekki seinna en á fyrsta ársfjórðungi 2027.
|
|||||||||||||||||||
|
Ef óskað er frekari upplýsinga, eða ef koma þarf athugasemdum á framfæri, vinsamlegast hafið samband við:
|
|||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||
|
Netfang / Email:
procedures@avians.is
Sími / Phone: +354 424 4000 |
|||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||
|
Upplýsingabréf fellt út gildi:
|
|||||||||||||||||||
|
Ekkert
|
|||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||
|
Efni eftirfarandi NOTAM skeyta birt í þessu upplýsingabréfi:
|
|||||||||||||||||||
|
Ekkert
|
|||||||||||||||||||
|
ENDIR / END |
|||||||||||||||||||